24.04.2012 14:39

Benelli mótaröð Veiðihússins Sökku og Skotreynar 2012.

Veiðihúsið Sakka og Skotreyn ætla að finna bestu sporting skyttu landsins í sumar.  

Í fyrstu verðlaun verða ferð og þátttökuréttur á Benelli SP Auto mótið sem haldið verður í Englandi í Maí 2013. Á því móti mætast og reyna með sér allar helstu og bestu sporting skyttur veraldar. 

Dagskrá mótaraðarinnar er: 

Laugardagurinn 12. Maí* kl. 12:00 (mæting kl. 11:00)

Laugardagurinn 16. Júní* kl. 12:00 (mæting kl. 11:00)

Laugardagurinn 1. September* kl. 12:00 (mæting kl. 11:00) 

Nýlunda er á þessu mótum að skráningu lýkur á miðnætti á fimmtudagskvöldi fyrir mót og skal senda skráningu á svavarstef@hotmail.com fyrir þann tíma.

Skotnar verða 75 dúfur á hverju móti og mun samanlagður árangur af 2 bestu mótunum gilda.

Mótagjald verður 2.500kr.

Við hvetjum alla til að koma og spreyta sig í leitinni að bestu sporting skyttu Íslands. Athugið að aðeins er leyfilegt að skjóta með Benelli byssum á mótinu. Á æfingasvæði Skotreynar eru tvær Benelli Vinci byssur til afnota fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt en hafa ekki aðgang að Benelli byssum. 

Kær kveðja
Veiðihúsið Sakka og Skotreyn

*Dagsetningar geta breyst með skömmum fyrirvara ef veðurspá verður mjög óhagstæð

24.04.2012 14:35

Hringjakortin klár

Var beðinn um að benda á það að hringjakortin eru tilbúin og er hægt að nálgast þau hjá Gumma Halldórs.

22.04.2012 17:56

Umgengnis reglur

Það vildi þannig til í dag að Ómar mætti frá Akureyri til æfinga. Það var nú ekkert sérstök aðkoma á vellinum þegar hann ætlaði að hefja æfingar. Patrónur um allan völl og kastvélar svo gott sem tómar. Þurfti hann því að byrja á að fylla á vélar og tína upp áður en hann gat farið að skjót. Svona nokkuð gengur bara ekki.

Kv Ommi

22.04.2012 17:54

Uppfærsla

Nú er búið að uppfæra mótaskrá 2012. Sett voru inn STÍ mót og einnig þau mót sem eru í boði á Akureyri.

06.03.2012 20:46

Nýr formaður kosinn



Góð mæting var á aðalfund Skotfélags Húsavíkur sem haldinn var í félagsheimili klúbbsins síðastliðinn sunnudag þar sem kosinn var nýr formaður og ný stjórn fyrir árið 2012.  Fór kosningin þannig að formaður  var kosinn Kristinn Jóhann Lund og  í stjórn  þeir Guðmundur Halldórsson, Elías Fr. Elvarsson, Kristinn Lúðvíksson og Kristján Arnarson.

05.03.2012 21:24

Mótaskrá 2012

Þá hefur verið sett saman mótaskrá fyrir skeet sumarið 2012. Þetta er kannski ekki endanleg útgáfa og gæti átt eftir að taka smá breytingum. Eins á eftir að ákveða hvaða riffillmót verða í boði í sumar og hvaða daga.
Skoða má mótaskrá 2012 hér

23.02.2012 08:45

Kristján Arnarson sigraði riffilskotmót Skotfélags Húsavíkur



Um síðustu helgi fór fram riffilskotmót Skotfélags Húsavíkur á skotvelli félagsins. Góð þátttaka var og fór mótið vel fram þrátt fyrir svolítinn vind.

Sigurvegari mótsins varð Kristján R. Arnarson, í öðru sæti Njáll Sigurðsson og í því þriðja Kristján Phillips. Önnur úrslit voru.
4. Guðmundur Halld.
5. Finnur Steingr
6. Sveinbjörn lund jr.
7. Grétar Axelsson.
8. Reynir Hilmarsson
9. Gylfi Sig.
10. þórður Í varsson
11. Benedikt þorst.
12. Kristinn Lund
13. Hallur Lund
14. Aðalsteinn Halldórs.
15. Kristján Hjaltalín


Hér koma nokkrar myndir sem Gylfi Sigurðsson tók

  • 1
Flettingar í dag: 30
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 8
Gestir í gær: 7
Samtals flettingar: 29461
Samtals gestir: 10197
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:49:57